16.09.2009 11:36:13 / magga

Maíblogg

Allt gott að frétta af mér...alltaf syngjandi og gengur mjög vel...Söngnemandi minn var að taka 1. stig hjá mér í vor og var ég þá prófdómari í stigs-prófi í fyrsta sinn á vegum Lista-háskólans.  Það var gaman og ég er voða stolt af henni Tinnu Rós, söngnemandanum mínum sem stóðst stigsprófið með mikilli prýði :) Hún ætlar að taka hjá mér 2. og 3. stig næsta vetur :) Voða gaman. Fyrir hana að fá fría söngtíma og fyrir mig að þjálfast í að kenna og útskrifa nemanda með grunnstigspróf :)

Kristján Jóhannsson var ánægður með mig og hvatti mig áfram og ég var ánægð með það sem hann sagði, fyrir utan það þegar hann hélt að ég væri kannski sópran, því ég fer svo auðveldlega uppá háa c-ið. Ég hristi nú bara hausinn...Það er náttúrulega hið besta mál og jákvætt að ég nái háa c-inu svona vel núorðið, en ég og Elísabet, kennarinn minn, og svona nánast allir aðrir, erum þess fullvissar um að ég er pjúra mezzo-sópran, því málið er ekki hversu hátt eða lágt maður nær eins og sumir halda, heldur hljómurinn á röddinni, sem í mínu tilfelli er dekkri en venjulegir sópranar, og mér líður líka best á miðsviðinu, ekki á efsta sviðinu, svo mezzo-sópran er algjörlega málið fyrir mig. Ég finn það alveg sjálf. Ef ég ætla að verða óperusöngkona, þarf ég líka að ná uppá háa c-ið sem mezzosópransöngkona hvort eð er...

Ég er búin að vera að syngja einsöng á óratoríutónleikunum í Bústaðakirkju, einsöng á árshátíð Bústaðakirkju, á fundi fyrir gamla fólkið í Bústaðakirkju, einsöng á kammertónleikum í Listaháskólanum, söngtónleikum í Listaháskólanum, með Bústaðakórnum á tónleikum...einsöng og dúett í fermingum í Kópavogskirkju og svo er ég alltaf í kammerkórnum sem syngur á jarðarförum og messum í Bústaðakirkju. Var að reikna út að frá því um jólin er ég búin að skrapa saman í 250 þús. kall bara fyrir að koma fram og syngja! :) Mjög ánægð með það.

Ekki slæmur vasapeningur með náminu það og er ég fegin að ég gaf verslunarstörfin uppá bátinn í vetur og einbeitti mér bara að þessu, væri ekkert að fá mikið meira þar og söngur er mér bæði miklu auðveldari og miklu skemmtilegri vinna :) Sem og fljótlegri. Ég þarf ekki að eyða heilu dögunum í Ríkinu eða einhverri sjoppu, bara mæta einn og einn klukkutíma af og til og fæ þar af leiðandi meiri tíma með manninum mínum og dóttur minni :) Nú stefni ég bara á að reyna að troða mér að á enn fleiri stöðum í vetur til að auka tekjurnar enn frekar með náminu.  Og koma meira fram með Örnu söngkonu og fiðluleikara. Það er svo gaman að tónlistast með henni. 

Ég er búin að fá boð um að taka aftur þátt í tónlistarhátíð unga fólksins í Salnum Kópavogi í ágúst, þar sem Auður Gunnarsdóttir og Bergþór Pálsson munu vera með masterklassa fyrir langt komna söngnemendur og einhverjir þeirra halda svo tónleika í Salnum um miðjan ágúst. Spennt fyrir því.  Verð svo kannski með einhverja tónleika á eigin spýtur í sumar líka ef ég hef tíma, en er bara mjög fegin að vera með fasta vinnu í sumar í afleysingum á skrifstofu, því það er víst ekkert sjálfgefið á þessum krepputímum í þeim efnum. Svo er Arndís Alda litla skvísa að byrja á leikskóla líka í júní skvísan :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2009 14:56:49 / magga

Söngtónleikar á fimmtudagskvöldið kl. 18

Ég er að syngja á söngtónleikum í Listaháskólanum á fimmtudaginn 7. maí kl. 18.
 
Á efnisskránni er ljóðaflokkur eftir Grieg, ljóðaflokkur eftir Gösta Nystroem, Ave Maria eftir Sigvalda Kaldalóns og Voce di donna, aría úr óperunni La Giaconda eftir Ponchielli.  Á tónleikunum koma einnig 3 aðrar söngkonur úr skólanum fram með fjölbreytt prógramm og er ég síðust þeirra í röðinni.

Tónleikasalurinn er "skúrinn" beint fyrir framan Listaháskólann á horni Klapparstígs og Skúlagötu.

Þætti vænt um að sjá ykkur meðal áhorfenda :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2009 00:50:41 / magga

La músíca es mi vida

Já gleðilegt ár Kristjana, hehehe ;) Ég er orðin svo léleg að blogga að ég man ekki einu sinni eftir að auglýsa tónleikana mína hérna, facebook hefur yfirtekið það hlutverk :) En hér kemur smá "öppdeit" af því sem ég hef verið að gera í vetur.

Það er allt mjög gott að frétta af okkur famelíunni.  Arndís Alda dafnar vel, er hjá dagmömmu á daginn, en við Þórir erum bæði í fullu námi. 

Mér gengur virkilega vel í söngnum. Hef verið að spila og syngja í brúðkaupum og stórafmælum hjá skyldfólki við góðan orðstír í vetur og einsöng, dúett og tríó í Bústaðakirkju. Er í atvinnusöngvarahóp í Bústaðakirkju þar sem ég syng reglulega við útfarir og aðrar kirkjulegar athafnir, nóg að gera í því og fínn vasapeningur, en þar eru allir útskrifaðir söngvarar, og sumir með mastersgráður. Var að syngja nokkur lög í Ráðhúsinu um daginn og á söngtónleikum með sönglögum eftir íslensk tónskáld á Myrkum músíkdögum í febrúar. Var í masterklassa hjá Auði Gunnars, mjög flottri óperusöngkonu á föstudaginn.  Hún heyrði í mér á tónlistarhátíð unga fólksins í sumar og sagði að það væri allt að gerast hjá mér, ég væri í bullandi framförum, og röddin hefur stækkað heilmikið.  Gunnar, sænskur prófessor var með masterklassa hérna líka nýlega og var líka virkilega ánægður með mig og fannst ég vera orðin alveg "marvellous" eins og hann orðaði það, hehe :) Svo er Kristján Jóhannsson á landinu núna í mánuð, ég hitti hann uppí Bústaðakirkju um daginn þegar ég var að syngja á jarðarför og hann bauð mér í nokkra einkatíma, mjög gaman :) Elísabet sagði að ég væri orðin svo djöfulli góð, að hún vill senda mig í keppni um að fá að koma fram sem einsöngvari með sinfóníuhljómsveit Íslands í haust!" :)  Ekki amalegt það! :) Ekki það að ég haldi að ég sé endilega sigurstrangleg, en að taka þátt í slíkri keppni er auðvitað mjög góð reynsla og viss viðurkenning á því að ég er komin á háan standard sönglega. Get sennilega farið að syngja í íslensku óperunni áður en langt um líður :)

Nú, svo er ég í píanótímum, sem ganga mjög vel, gæti verið í masterklössum og öllum pakkanum í píanóinu líka ef ég hefði tíma, en það hefur soldið stangast á við söngtímana núna eftir áramótin.  En ég er óvenju músíkölsk og svo fljót að læra að ég get tekið einleikarapróf á píanóið (8.stig) með einsöngvaraprófinu næsta vetur, þarf bara að taka blaðlesturinn soldið í gegn í haust, en ég stefni þá á að klára píanóeinleikaraprófið í febrúar, og einsöngvaraprófið í apríl :)

Svo er ég að stjórna barnakór í Kópavogi, 7-8 ára börnum, það gengur mjög vel og er yndislegt. Mjög gefandi, börnin alveg dýrka mann :) Ég er líka oft aðstoðarkórstjóri í Bústaðakórnum líka, þar sem ég er í kór, en þá tek ég helminginn af kórnum, æfi kannski karlana og kórstjórinn konurnar eða öfugt í sitthvoru herberginu til að nýta tímann betur að fara í raddirnar.  Ég hef mikinn hæfileika sem kórstjóri samkvæmt henni Þórunni Björnsdóttur, sem stjórnar Kársnesskórunum en ég hef fylgst með henni kenna og lært margt af henni :) En ég hef nú sjálf verið í barnakór og man hvernig það var og þetta er bara gaman og er mér eðlislægt.  Ég var að stjórna krökkunum í fjölskyldumessu um daginn og mun stjórna þeim líka á tónleikum í Smáralindinni í apríl :)

Svo er ég í dúettnum Ferund, við erum tvær klassískar söngkonur sem spilum jafnframt á píanó og fiðlu og höfum verið að leggja áherslu á íslensk þjóðlög og íslensk sönglög, byrjuðum í desember og vorum að vinna við það um jólin að koma fram á jólahlaðborðum á sjúkraheimilum og fyrir fyrirtæki.  Það gekk mjög vel svo við ákváðum að halda samstarfinu áfram. Við tókum upp geisladisk í janúar, komum fram í Ráðhúsinu og í Bústaðakirkju í febrúar og verðum með tónleika í Listaháskólanum núna í mars/apríl og erum að vinna að því núna að setja upp heimasíðu til að auglýsa okkur betur fyrir árshátíðir, brúðkaup, jarðarfarir og þess háttar.

Nú það sem er á döfinni í nánustu framtíð hjá mér er að ég er að syngja einsöng á óratoríutónleikum í Bústaðakirkju á fimmtudagskvöldið.  Óratoríur eru ávallt með trúarlegan texta og ég syng 2 afskaplega fallegar aríur eftir Bach úr Mattheusarguðspjalli um þjáningar Krists og hin um miskunn og iðrun.  Tónleikarnir fara fram í Bústaðakirkju núna (19. mars) kl. 20 en fram koma einnig fleiri flottir einsöngvarar innan kirkjunnar.

Í gær var ég svo beðin um að syngja einsöng í byrjun apríl, frumflutning á 2 nýjum íslenskum verkum eftir íslensk tónskáld, með sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Ungfóníu á tónleikum laugardaginn 4. apríl kl. 13.  Heiður að vera beðin um það og mjög spennandi :)  

Í apríl verða svo ýmsir kammertónleikar sem ég kem fram á, ég syng einsöng með píanóleikara og víóluleikara 2 verk eftir Brahms, óratoríuaríu með organista í skólanum, við Arna í Ferundinni verðum með eigin tónleika með íslenskum þjóðlögum og sönglögum (píanó, fiðla og söngur) í Listaháskólanum :) Ég er að spila á píanótónleikum kvöldið 30. apríl og 29. apríl syng ég á tónleikum með Bústaðakirkjukórnum.  Syng einsöng í Kópavogskirkju líka í fermingarmessunum, og stjórna barnakórnum mínum í Smáralindinni. Svo verða líka nútímatónleikar í apríl eða maí þar sem ég mun flytja alveg ótrúlega fallegan sænskan ljóðaflokk og annað söngverk eftir sjálfa mig sem er í vinnslu :)

Þannig, já, eins og sjá má er alveg brjálað að gera, maður mætir snemma á morgnana til að æfa sig og svo eru tónbókmenntatímar, hljómfræðitímar, meðleikur, söngur, leiklist ofl...svo það gefst ekki tími til annars en að vinna í tónlistinni og hugsa um 1 árs skvísuna.  Það væri ágætt ef það væru aðeins fleiri tímar í sólarhringnum stundum :)

En Arndís Alda er nú alveg yndisleg, það er svo gaman að fylgjast með henni! Hún er mjög dugleg, ákveðin og blaðrar og blaðrar allskonar bull, bendir á hitt og þetta og getur dundað sér alveg heillengi.  Hún er líka farin að skilja svo mikið og svo er hún farin að dansa, spila og syngja eins og mamma sín og hlær eins og algjör engill :D Alltaf svo glaðlynd.  Þvílík blessun að hafa eignast þetta yndislega barn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 15:16:55 / magga

Gleðilegt nýtt ár!

http://www.alphadogbehaviour.co.uk/resources/dogs+and+fireworks.jpg
Óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs með ljós og frið í hjarta :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2008 13:22:02 / magga

Píanótónleikar fös. 5. des og söngtónleikar mán. 8. des

Ég er að spila á píanótónleikum í tónleikasal Listaháskólans kl. 20 annað kvöld.  Tónleikarnir eru klukkutími og erum við 4 sem spilum í 10-15 mínútur hver.  Á efnisskránni hjá mér er Sofeggio eftir Bach, Beethoven-sónata og vals eftir Chopin.  Á tónleikunum spila einnig Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir, Halldór Sveinsson og Þuríður Helga Ingadóttir.  Vona að ég sjái ykkur sem flest.  Þið sem eruð að vinna eða í miðjum prófalestri getið farið á netið og hlustað á tónleikana í beinni útsendingu, sem er nýjung hjá Listaháskólanum :) Linkur á slóðina er hér í færslunni fyrir neðan.

Svo eru einsöngstónleikarnir mínir á mánudaginn.  Þar er ég að syngja lög eftir Schubert, Sibelius og Merikanto, aríettu eftir Bellini og aríur eftir Purcell og Menotti, tæplega hálftíma prógramm. Þar er nú mun betra að mæta á staðinn þar sem þýðingarnar í tónleikaskránni hafa mikið að segja uppá túlkun að gera og sjón er sögu ríkari :) Ásamt mér koma einnig fram á tónleikunum Kristinn Freyr Kristinsson og Sturla Einarsson gítarleikarar :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2008 12:52:45 / magga

Jólatónleikar Listaháskólans

Jólatónleikum tónlistardeildar Listaháskólans útvarpað beint í fyrsta sinn!

Tonlistardeild 08

Hinir árlegu jólatónleikar tónlistardeildar LHÍ standa nú yfir frá 27. nóvember - 12. desember.

Sú nýjung er á að í fyrsta sinn er hægt að hlusta á tónleikana beint á netinu þannig að þeir sem ekki eiga heimangengt geta notið ljúfrar tónlistar heima í stofu eða annarsstaðar.

Útsendingunni stjórna nemendur í tónlistarkennslu en þeir hafa verið í tveggja vikna námskeiði þar sem þeim hefur verið kennt að gera handrit og vera með beinar tónleikaútsendingar. Nemendur í upptökutækni munu sjá um tæknivinnuna sem þessu fylgir.

Hvetjum við alla til að láta ekki jólatónleikana fram hjá sér fara. Dagskrá tónleikana er að finna hér á heimasíðu skólans.

Allir tónleikarnir nema þeir fyrstu eru í tónleikasal skólans Sölvhól, Sölvhólsgötu 13.  Aðgangur eru ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.

Slóðin á beina útsendingu er : http://lhi.is/2008/11/21/jolatonleikar-tonlistardeildar-listahaskolans-2008/


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 11:58:36 / magga

Hádegistónleikar á föstudaginn

Föstudaginn 28. nóvember munu nokkrir söngnemendur úr Listaháskóla Íslands halda hádegistónleika með dúettum tónskáldsins Mendelssohn.  Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 í flyglasal Listaháskólans og lýkur fyrir 13, svo um að gera að nýta hádegishléið sitt og hlusta á ljúfa tóna.

Söngvarar eru Björg Þórsdóttir, Sópran, Eyrún Ingólfsdóttir, sópran, Margrét Helga, Mezzosópran, Þorsteinn Freyr Tenór, Ingunn Gyða, sópran og Inga Dóra mezzosópran.
Píanóleikari er Jane Ade.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir :)

-Ég er að syngja How can I blithe and cheerful be með Ingunni og Even song með Björgu.  Hlakka til að sjá ykkur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 14:54:45 / magga

9 mánaða skvísa

Tíminn líður hratt. Arndís Alda er orðin 9 mánaða og komin með tvær flottar tönnslur í neðri góm og má finna fyrir öðrum tveimur í efri góm núna, aldeilis flott skvísan :)  Hún er farin að reyna að tjá sig með tali, segir skýrt mamma, babba og dadda og svo heyrir maður að hún ber fram fleiri og fleiri íslenska stafi, svo ætli það fari ekki að styttast í að hún fari að tala :) Hún skríður um á ljóshraða núna, svo maður þarf alveg að hlaupa á eftir henni til að ná henni :) En hún heldur áfram að vera algjör engill.  Rosa góð og glöð alltaf, borðar mjög vel og dafnar vel.

Við Þórir fórum með hana í Húsdýragarðinn um helgina ásamt Kristjönu vinkonu og krökkunum hennar og og við fengum þau svo í heimsókn eftir á og það var sko stuð hér á bæ :) Krakkarnir voru að spila bæði á gítar og píanó og fannst Arndísi Öldu alveg æðislegt að fá þau í heimsókn, lék á alls oddi, hló og skemmti sér og leit greinilega mikið upp til eldri krakkanna.  Svo var snilld að sjá hana plokka strengina á gítarnum og hossa sér að dansa í takt :) hehe

Annars er maður auðvitað eins og aðrir með áhyggjur af því hvað er að verða um þetta blessaða land okkar...við keyptum okkar fyrstu íbúð í des í fyrra og er útlitið ekki bjart með þá fjárfestingu. Keyptum auðvitað á uppsprengdu verði.  Við hver mánaðarmót hækkar lánið okkar um mánaðarlaun okkar útaf verðbólgu, þó við séum að borga af láninu og á því að eftir að hækka um einhverjar milljónir bara í náinni framtíð, því verðbólgan er ekkert að fara að hjaðna fyrren í fyrsta lagi seint á næsta ári. Á sama tíma á fasteignaverð eftir að hríðlækka, svo við komum útúr þessu stórskuldug, eignumst ekki neitt í íbúðinni nema skuldir sem verða mun hærri en andvirði íbúðarinnar. -Æðislegt, ekki satt?

Í þessari stöðu eru svo margir Íslendingar og ómögulegt að komast útúr þessu...Og margir eru mun verr settir en við.  Svo maður verður bara að líta á björtu hliðarnar.  Peningar skipta svo litlu máli í lífinu þegar maður er við góða heilsu og á góðan mann og yndislega dóttur.  Gæfi glöð frá mér aleiguna fyrir heilbrigðan Þóri og heilbrigða Arndísi Öldu.

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 14:15:12 / magga

Tónlistarnámið

Búið að vera mikið að gera hjá mér í skólanum uppá síðkastið, og ég dugleg, er stundum að frá 7 á morgnana til að verða miðnættis og hef eiginlega ekki haft tíma fyrir neitt nema námið og dóttur mína...En námið gengur glymrandi vel hjá mér, enda er ég orðin úber skipulögð núna, (hver hefði trúað því, hehe) maður þarf að skipuleggja hverja mínútu sólarhringsins þegar maður er í meira en fullu námi og með barn.  En það er sko ekkert að há mér að eiga þennan litla engil sem brosir bara og hlær, enda er Þórir líka búinn að vera duglegur að sjá um hana þegar ég var í prófatörninni.  Var að fá útúr tveimur mikilvægum prófum nýverið og fékk 8,5  og 9 og umsögnina Glæsilegt! :)  (Hæsta einkunn var 9) ;) Elísabet talar líka um að ég sé orðin lygilega góð söngkona :) 

Ég er komin í hóp atvinnusöngvara í Bústaðakirkju, þar sem ég syng á jarðarförum og öðrum kirkjuathöfnum, en þar er ég í hópi söngvara á borð við stórtenórinn Jóhann Friðgeir óperusöngvara og mezzodívuna Nathaliu (ekki Imbruglia, hehe) sem var að vinna sólistakeppni sinfóníunnar nýverið, svo það er ekki amalegt að vera í þessum atvinnusöngvarahópi :)  Svo er ég að fara að syngja í gospel-jólamessu í Bústaðakirkju þann 9. nóvember :) Ótrúlega skemmtileg lög sem við erum með þar og ég ætla að syngja einsöng líka, so be there or be square ;)  Skemmtilegt forskot á jólafílinginn :)

Þegar ég fór að kenna á píanó kviknaði áhugi hjá mér að fara aftur að æfa sjálf og klára 8. stigið sem ég lauk aldrei þar sem ég hætti að æfa í menntaskóla.  Svo auk söngsins er ég núna líka farin að æfa á píanó sem aukahljóðfæri hjá einum færasta píanóleikara landsins Peter Maté, sem er að kenna í Listaháskólanum og kenndi m.a. Víkingi Heiðari, mesta píanósnillingi ungu kynslóðarinnar.

Peter hélt að ég væri að ljúga þegar ég sagðist hafa tekið 6. stig á píanó innan við fermingu, eða þegar ég var 13 ára og byrjað að semja lög með báðum höndum á píanóið, strax þegar ég byrjaði að læra 8-9 ára, samdi tóntegundaskipt og tilfinningaþrungin verk 11-12 ára.  Við vorum bara 3 á landinu sem kláruðum 6. stig svona ung, ég, Víkingur Heiðar og Thelma, sem var líka nemandi Jaceks, kennarans míns.  En við Víkingur þau einu sem kláruðum það með glymrandi góðri einkunn.  Peter upplýsti mig þá um það að ég hefði verið undrabarn :) hehe Sem gæti jú alveg verið rétt, þar sem ég komst inn í tónsmíðar í Listaháskólanum án þess að hafa nokkurn tímann lært tónsmíðar og varla nokkra hljómfræði.  Ég bara vissi einhvern veginn innra með mér hvað ég ætti að semja næst og hvernig ég ætti að skrifa nóturnar, og tónheyrn uppá 10 hjálpaði auðvitað töluvert.  

Ég var fljót að koma mér uppá lagið með píanónámið, þó ég hafi ekki æft í fjöldamörg ár og er á masterklössum og aukatímum með þeim sem eru að læra píanó sem aðalfag í skólanum.  Fékk einkatíma hjá píanóprófessornum Tellef um daginn var að spila vals eftir Chopin og hann var ánægður með mig :)  Svo spilaði ég 1. kafla úr sónötu eftir Beethoven utanað í masterklass með píanókrökkunum á föstudaginn, er núna að fara að ráðast í 2. og 3. kaflann á Beethovensónötunni og svo nútímatónlist, impressjónistaverk eftir Debussy sem er í óræðari tóntegundum og því flóknara.

Þar að auki er ég í tóngreiningu, tónbókmenntum, tónlistarsögu, Listinni að syngja, meðleik, kammerhópum þar sem ég er að æfa dúetta eftir Mendelsohn og meðleik með píanónemendum, finnskutímum þar sem við söngvararnir erum í masterklassa hjá Sama, finnskum prófessor núna í vikunni og upptökutækni, þar sem ég er að taka upp minn eigin geisladisk með íslenskum dægurlögum, sem ég spila og syng sjálf.  

Svo það er nóg að gera í skólanum, ofboðslega gaman og gengur vel :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 11:07:37 / magga

Yfirlit sumarsins '08

Maður er ekki alveg að standa sig í bloggheimum núorðið :) En síðan hennar Arndísar Öldu er biluð, get ekki sett neitt þar inn, nema komment í gestabókina, svo ég ætla að segja frá því hvað við litla famelían gerðum af okkur í sumar hér.

Við fórum sem sagt með Arndísi Öldu í húsdýragarðinn í fyrsta sinn, sjá öll dýrin og nýfædda kópa, sem henni fannst athyglisvert, en var kannski ekki orðin eins spennt fyrir dýrunum og krakkar sem voru 1-5 ára, hún var náttúrulega bara hálfs árs og mest undrandi á þessu öllu saman :) Var hvað mest spennt fyrir skrautlegum gullfiskum, hehe :) Við fórum með hana á sumarsprell ÁTVR í góðviðri ásamt Vigdísi og dóttur hennar, þar sem var brúðuleikhús og leiktæki fyrir börnin og ýmislegt ókeypis góðgæti fyrir starfsmenn og aðra velunnara ÁTVR ;)

Svo fórum við með hana í skrúðgöngu og göngutúr á 17. júní í alveg æðislegu veðri, sól og blíðu, svo mikilli sól og blíðu meira að segja að mér tókst að brenna, hehe ;)
Og svo Gay Pride gönguna, sem sú litla hafði alveg einstaklega gaman af, starði úr sér augun af öllu þessu litríka fólki sem dansaði og söng á trukkunum niður Laugaveginn og mannfjöldanum en hún var hvað hrifnust af svona Gay Pride fána í öllum regnbogans litum, og reyndi í sífellu að ná honum af fólki sem sýndi henni áhuga, hehe :) Þar hittum við Jönu vinkonu sem var á landinu í mánuð að vinna að doktorsverkefninu sínu.  Æðislegt að sjá hana aftur, verst að maður náði bara að hitta hana tvisvar, því hún var svo upptekin við doktorsverkefnið, fyrirlestra jarðfræðinga og þess háttar.
 
Elísa og Ása útskrifuðust úr hjúkrunarfræðinni og Áslaug úr lyfjafræðinni og Rafn úr íþróttafræðinni í júní, svo það var nóg af útskriftarveislum sem maður mætti í og samgladdist þessum merku áföngum í lífi þeirra, en mamma og pabbi Þóris og Þórey hafa verið dugleg að líta eftir Arndísi Öldu þegar eitthvað hefur verið um að vera hjá okkur skötuhjúunum.

Nú svo skelltum við famelían okkur í útilegu um verslunarmannahelgina, rétt hjá Hellu, þar sem flugklúbburinn hans Þóris var með dagskrá.  Við fengum lánað fellihýsi hjá vinnufélaga Þóris, með gaseldavél og öllu tilheyrandi, voða kósý og þægilegt og Arndís Alda skemmti sér bara vel í útilegunni og fannst voða gaman að fá að sitja í grasinu :) En hún fór að sitja ein og óstudd og skríða þegar hún var 6 mánaða skvísan.  Og standa upp sjálf, þegar hún var 7 mánaða, aldeilis sterk og dugleg stelpa :) Svo nú má aldeilis fylgjast með henni þar sem hún skríður og stendur upp útum allt ;)

Svo fórum við líka í aðra helgarferð út á land.  Snæfellsnesið varð fyrir valinu, þar sem við heimsóttum skyldfólk Þóris, fórum í göngutúra, bíltúra og fengum pössun fyrir Arndísi Öldu og fórum í snjósleðaferð uppá Snæfellsjökul einn daginn :) Það var æði og var meira að segja eitt par að trúlofa sig á toppnum sem var með okkur í hóp :)  Gaman að því.  Upplifun sem verður seint eða aldrei endurtekin, því ég held svei mér þá að jökullinn sé að bráðna á næstu árum!

Í ágúst var ég svo að syngja á tónlistarhátíð Unga fólksins í Salnum Kópavogi, sem var haldin í fyrsta sinn, en þessi tónlistarhátíð hlaut verðlaun menningarsjóðs fyrir framtak sitt.  Á þessari tónlistarhátíð voru valdir nemendur á hin ýmsu hljóðfæri og söng eins og ég til að taka þátt í masterklössum og koma fram á tónleikum, en við vorum 10 langt komnir söngnemendur sem sungum á masterklössum fyrir þekktu óperusöngvarana, þau Auði Gunnars og Gunnar Guðbjörns.  Það gekk vel, sérstaklega fannst mér ég fá mikið útúr Auði, og vorum við þrjár stelpur af þessum 10 sem komum fram á tónleikum í Salnum í kjölfarið, ég úr Listaháskólanum, ein úr Söngskóla Reykjavíkur og ein úr söngskóla í Bandaríkjunum, þar sem við sungum aríur, ég söng einstaklega fallegar aríur eftir Menotti og Purcell um dauðann.

Auður kom til mín sérstaklega eftir tónleikana sína og sagði við mig: "Haltu ótrauð áfram að syngja, þú ert með alveg einstaklega fallega rödd og gaman að hlusta á þig".
Mér þótti mjög vænt um að heyra það staðfest frá svona virtri söngkonu sem er nú einmitt að syngja eitt aðalhlutverkið í íslensku óperunni núna ásamt Kristjáni Jóhannssyni og fleiri snillingum, staðfesting á að ég geri allt rétt, því þegar allt er gert rétt, þá hljómar persónulegur hljómur raddarinnar.  Svo þetta gengur allt bara ljómandi vel hjá mér svo ég held auðvitað ótrauð ófram ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 22:44:15 / magga

Smá-blogg

Nettengingin datt út hjá okkur í vikunni, erum nýbúin að koma því í lag og þar sem ég er að fara í tóngreiningarpróf í Listaháskólanum á morgun og annað stórt próf næsta laugardag, verður þetta bara stutt í dag, en lofa betra bloggi eftir prófið næstu helgi.

Það er bara allt rosa gott af okkur litlu famelíunni að frétta.  Arndís Alda engill að venju og hefur þroskast töluvert og dafnað vel.  Farin að borða allan mat, segja "mamma, dada og baba", skríða á fjórum fótum útum allt og standa á fætur hvar sem hún getur stutt sig við eitthvað, og mjakar sér meðfram húsgögnum með bros á vör.  Hún er byrjuð hjá dagmömmu sem býr rétt hjá okkur í Árbænum og unir sér vel þar með öðrum krökkum á hennar reki.  Held hún hafi bara gott af því og dagmamman er voða hrifin af henni.

Þórir er að vinna á verkfræðistofunni og í tveimur kúrsum í Háskólanum með.  Nóg að gera hjá mér í tónlistinni, syngja og spila í brúðkaupum og afmælum og syngja á tónleikum í Salnum á tónlistarhátíð Unga fólksins í ágúst.  Er hætt að vinna í ÁTVR með skólanum en er nú að vinna við tónlistarkennslu, með bæði píanó- og söngnemendur og er að fara að syngja á jarðarförum í Bústaðakirkju með náminu og stefni á að halda áfram að spila dinner á árshátíðum og jólahlaðborðum.  Fínn peningur í því.  En stutt sagði ég, þarf að læra :)  Ciao!

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 12:26:12 / magga

Hún á afmæli í dag!



Í dag er hálft ár frá því að þessi litli sólargeisli leit dagsins ljós.  Komnar eru inn nýjar myndir af henni inná heimasíðu dömunnar.  Tengill hér til vinstri undir "Flottustu börnin í bænum"


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 20:50:31 / magga

Rúna á píanótónleikunum sínum



Í lok maí hélt píanónemandinn minn hún Rúna tónleika.  Hún spilaði 8 lög úr 1. stigi sem ég spilaði undir með henni, og svo 4 lög alveg ein, með algengustu þríhljómunum sem undirspil í vinstri, sem ég er búin að kenna henni.  Síðasta lagið söng hún með, lagið Dream, dream, dream, sem ég var búin að hljómsetja fyrir hennar rödd.  Henni gekk alveg æðislega vel, ruglaðist ekki neitt, sem er alveg stórglæsilegt af 12 lögum.  Var rosa stolt af henni :)  Hún er líka með svo góðan kennara :lol: hehehe  Hún og mamma hennar voru svo yndislegar að gefa mér þennan glæsilega blómvönd og kort með þakkir fyrir kennsluna og gáfu Arndísi Öldu minni þennan líka flotta bleika Adidas galla úr Intersport :) Rúna ætlar að halda áfram að læra hjá mér næsta vetur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 21:03:42 / magga

Tónleikar og útskriftir í maí

Það var margt skemmtilegt um að vera í maí.  Við Þórir og Arndís Alda fórum í göngutúra hér í Árbænum meðfram Elliðaánni, tókum strætó með vagninn niður í miðbæinn og röltum þar Laugaveginn, tjörnina, hljómskálagarðinn, Austurvöll, Ingólfstorg, Bæjarins bestu í góðviðri og einn daginn tókum við með okkur nesti og keyrðum á Þingvelli og fórum í göngutúr saman þar í náttúruparadís með Arndísi Öldu í burðarpoka, heimsóttum afa hennar og ömmu í Hveragerði, maður skellti sér í bíó og á kaffihús með stelpunum, í heimsóknir til annarra foreldra og barna og svo ótal tónleika og útskriftarveislur.

Fór á  vortónleika söngdeildarinnar hjá Björgu, Eyrúnu,  Krystinu og  Þorsteini.  Stóðu sig öll með prýði og sérstaklega Þorsteinn sem fór á kostum og hefur farið ekkert smá fram.
Þorvaldur bassasöngvari var að útskrifast úr söngdeildinni og hélt útskriftartónleikana sína og veislu í Salnum, sem heppnuðust mjög vel, en hann er nú á leið erlendis í mastersnám í haust.  Sól sem útskrifaðist í fyrra var líka að fá inngöngu í mastersnám í Hollandi í haust. Mjög spennandi. Veronica mezzosópran útskrifaðist líka og hélt sína tónleika og veislu í Langholtskirkju ásamt kórnum sem hún stjórnar á Snæfellsnesi.  Hún ætlar að halda áfram með kórana sína þar og ferðaþjónustu sem hún og maðurinn hennar eru með.  Mamikó Dís vinkona mín úr tónsmíðadeildinni var líka með útskriftartónleika í Langholtskirkju þar sem lokaverkefnið hennar var kórverk fyrir kvennakór og hljómsveit, sungið á japönsku og var alveg hreint magnað :)

Svo fengum við Þórir boðsmiða á tónleika Aniimu í Hafnarhúsinu á Listahátíðinni í Reykjavík.  Þeir voru alveg æðislegir!  Spilað á strengi, slagverk, sagir, glös, sungið, alveg kyngimagnaður hljóðheimur.  Þær eru allar klassískt menntaðar og nokkrar sem maður kannast einmitt við úr tónlistardeildinni í Listaháskólanum í Aniimu, ekkert smá flottar stelpurnar :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 15:37:10 / magga

5 mánaða fjörkálfur

Arndís Alda litla stækkar og fríkkar með hverjum deginum :) Hún er orðin 5 mánaða snúllan! :) Búin að slíta 3 fatastærðum, enda orðin 67,5 cm og 6,2 kg :)  Hún er búin að stækka um 16,5 cm frá því hún fæddist.  Það er svakalegt!   Fyrir þá sem átta sig ekki alveg á sentímetrunum, er þetta eins og maður myndi taka af henni fæturnar núna! :lol:

Hún er alveg hætt að "tala", það hefur sennilega verið tilviljun hvað hún talaði mikið fyrst og við héldum að hún væri að segja orð, en börn byrja víst ekki að tala orð fyrr en 10-13 mánaða :)

En hún tjáir sig alveg heilmikið, brosir útí eitt, hjalar og beitir röddinni á alla vegu og finnst það rosa sport.  Hún byrjaði að velta sér fram og til baka í apríl, þegar hún var nýorðin 3ja mánaða og velti sér í fyrsta sinn uppá borði hjá langafa sínum og langömmu á Flateyri, en Þórir flaug með okkur mæðgurnar á Ísafjörð að hitta þau gömlu á áttræðisafmælinu hans afa míns, langafa hennar.  Þau voru ekkert smá ánægð með það að fá okkur, enda aldrei séð þá litlu  nema á mynd áður.

Ef maður lítur af henni er hún pottþétt í allt annarri stellingu þegar maður kemur til baka. Nú er búið að draga fram stórt leikteppi sem ég, Guðni og Bjarki lékum okkur á þegar við vorum lítil.  Þar getur hún velt sér töluvert og leikið með dótið sitt, en veltir sér þó æ oftar lengst útá gólf og leikur sér þar, þessi rúsína :)

Þegar hún var 3ja mánaða byrjaði hún líka að skelli-skellihlægja! :D Yndislegast í heimi.  Maður er eitthvað að fíflast í henni og hún hlær og hlær og hlær alveg lengst neðan úr malla.  Við Þórir ætlum að reyna að ná þessu á video :)  Hún er svo einstaklega glöð og kát stelpa :) Algjör stuðbolti.

Svo er hún búin að vera í ungbarnasundi síðustu tvo mánuði, sem var mjög gaman og hún lærði að kafa og alls konar æfingar, svo nú er um að gera að halda henni við efnið í sumar til að halda köfunarviðbragðinu og svona. 

Svo er það nýjasta að hún er farin að borða graut síðan í maí! :)  Hún er ennþá alveg á brjósti og fær þurrmjólk þegar ég er fjarverandi, en er farin að vakna einu sinni á nóttu, stundum tvisvar til að drekka svo okkur fannst það vera merki um að hún væri kannski ekki að fá alveg nóg af brjóstamjólk.  Skvísan tekur vel í grautinn og er algjör mathákur á köflum :)

Þórir byrjaði svo að vinna aftur í maí, svo nú í sumar erum við mæðgurnar bara tvær heima á daginn að dúlla okkur saman :)  Ekki amaleg sumarvinna það :)  Þegar skvísan sefur hef ég verið að flokka söngnótur, kórnótur og píanónótur sem ég á, sögur, ljóð, tónsmíðar, ritgerðir og verkefni eftir mig í möppur og raða í plastvasa, sinna heimilisverkunum og æfa mig að spila og syngja.  Svo kíkjum við mæðgur í heimsóknir til annarra ungbarna og mæðra þeirra :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Dagsetning
8. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 57368